Líf eftir kynferðislegt ofbeldi
SASA er félagsskapur karla og kvenna sem hefur þá sameiginlegu reynslu að hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi einhvern tímann á lífsleiðinni.
Við komum saman til að deila með hvort öðru reynslu, styrk og vonum okkar. Hver svo sem birtingarmyndin á ofbeldinu hefur verið er til lausn.
Við höfum tólf reynsluspor og tólf erfðavenjur að leiðarljósi. Þau hjálpa okkur til sjálfsvakningar þannig að við förum að sjá og skilja afleiðingar af kynferðislega ofbeldinu sem við urðum fyrir. Við förum að læra að elska okkur sjálf og kynnumst nýu frelsi, einmanaleikinn og tómleikinn hverfur.
Höfuðatriðið er að við ætlum að eignast innihaldsríkara líf.
Við vorum fórnarlömb en ætlum að hætta að lifa sem slík.
Það hefur sýnt sig að afleiðingar af kynferðislegu ofbeldi eru kynlausar.
Vandamálin sem fylgja eru þau sömu og lausnin er sú sama.
Eins og það hefur sýnt sig í öðrum 12 spora samtökum þá erum við ekki ein.
Það sem þú lentir í var ekkert persónulegt gagnvart þér,
það vildi bara svo til að þú varst þarna.
Þögnin þín er óþarfi, eins og hún var hjá okkur.